Mótsstjóri: thrithrautardeildsh@gmail.com
Sunnudaginn 12.júlí verður keppt í sprettþraut sem fram fer frá Ásvallalaug í Hafnarfirði. Vegalengdin er stöðluð hálf-ólympísk vegalengd, sem þýðir að keppendur synda 750 m., hjóla 20 km. og hlaupa 5 km.
Í liðakeppni geta verið 2-3 í liði og skipta með sér greinum.
Keppt er í einum almennum aldursflokki og bæði kyn saman. Veitt eru verðlaun fyrir þrjú efstu liðin.
Millifæra þarf keppnisgjald inná reikning 3SH
Reikningur 0372-13-304029
Kt: 640269-2789
Eftir að búið er að greiða keppnisgjaldið skal senda staðfestingu á greiðslu ásamt nafni á keppendum, email hjá a.m.k. einum keppanda og áætlaðan sundtíma á thrithrautardeildsh@gmail.com
Einnig verða vegleg útdráttarverðlaun í boði fyrir þátttakendur.
Keppnisgjald er 6.000 kr.
ATH, skráningu lýkur föstudaginn 10. júlí 2020 kl. 23:59 og verður ekki hægt að skrá sig eftir það.
Afhending keppnisgagna fer fram að morgni keppnisdags frá kl 7:15 í anddyri Ásvallalaugar Hafnarfirði. Keppendur eru beðnir um að mæta tímanlega til að nálgast keppnisgögn, koma sér fyrir á skiptisvæði og kynna sér svæðið.
Skiptisvæðið opnar kl 7:15 og hefst þá einnig skoðun á hjálmi og hjóli. Frjálst val á hjólarekka, nema fyrstu 3 í stigakeppni ÞRI hafa frátekinn rekka.
Keppendafundur með keppnisstjórn er kl 8:10 í anddyri Ásvallalaugar. Ætlast er til að allir keppendur mæti á fundinn.
Sundlaugin opnar kl. 8:20.
Keppnin verður svo ræst kl. 9:00.
Kort af hjólaleið er að finna hér.
Byrjun og endir við Ásvallalaug hér.
Kort af hlaupaleið er að finna hér
Skiptisvæðið er síðan hér
Staðsetning: Ásvallalaug
Skipuleggjandi: Sundfélag Hafnarfjarðar
Start: 12. July 2020 kl: 00:00
Skráning hefst: 27. May 2020 kl: 00:00
Skráningu lýkur: 10. July 2020 kl: 23:59
Sund: 750m
Hjól: 20km
Hlaup: 5km
6-99 - 6000 kr.
Keppendalisti er birtur með fyrirvara en keppnisstjórn birtir staðfestan endanlegan lista að skráningarfresti loknum.