Mótsstjóri: umfn3nmot@gmail.com
- ALMENNUR FLOKKUR
Almennur flokkur er hugsaður fyrir öll þau sem eru skráð í þríþrautfélög og gefur stig í bikarkeppni félaga og einstaklinga.
Einnig er í boði ungmenna- og opinn flokkur sem og liðakeppni.
Skráning fer fram hér:
https://netskraning.is/ofursprettthraut-3n/
Keppt er eftir reglum Þríþrautarsambands Íslands.
Sjá reglur hér
Ofursprettþraut
– Sund 400 metrar
– Hjól 10 km
– Hlaup 2,5 km
Keppnisgjald verður 5000 kr
Sundið
Sundið fer fram í Vatnaveröld í Reykjanesbæ í 50 metra laug. Eftir sundið er hlaupið niður tröppur og út úr sundlaugarhúsinu að austanverðu þar sem komið er út á skiptisvæðið.
Hjólið
Hjólaleiðin er 2,5 km hringur sem leiðir þátttakendur framhjá Vatnaveröld í hverjum hring. Farið er út frá skiptisvæði beygt til vinstri upp Skólaveg, beygt til vinstri á hringrorgi inn á Flugvallarveg og aftur vinstri á hringtorgi inn á Hringbraut síðan vinstri á ljósum inn á Skólaveg. Að lokum er beygt inn að Vatnaveröld (Sunnubraut) og farið inn á sama skiptisvæðið aftur.
Hjólaleiðin er nokkuð greið og ætti að vera hægt að ná góðum hraða á leiðinni. Ljúka þarf fjórum hringjum áður en snúið er inn á skiptisvæði.
Hlaupið
Í sprettþrautinni er hlaupið sömu leið og á hjólinu. Um er að ræða 2,5 km hring eins og lýst er hér að ofan. Endað er við Vatnaveröld.
Skiptisvæði
Skiptisvæði verður á bílastæðinu austan við Vatnaveröld. Gæsla verður á svæðinu á keppnistímanum. Svæðið mun þjóna sem skiptisvæði fyrir T1 og T2 (skipting á milli sunds og hjóls er T1 og skipting á milli hjóls og hlaups kallast T2). Hjólarekkar verða á skiptisvæðinu. Þátttakendur er beðnir um að ganga snyrtilega um skiptisvæðið og hafa ekki óþarfa dót inni á svæðinu sem gæti flækst fyrir öðrum í hasarnum.
Tímataka
Notast verður við tímatökukerfi með flögum. Flögur verða afhentar á staðnum með keppnisgögnum. Gæta þarf að flaga og keppnisnúmer sé á sínum stað. Engin flaga, enginn tími.
Dagskrá
Sprettþrautin verður ræst kl. 9:00.
Hjólaskoðun fer fram milli 7:30 til 8:00.
Fundur með keppendum kl. 8:00
Sundlaug opnar kl 08:40
Keppni hefst kl 9:00
Staðsetning: Vatnaveröld Reykjanesbæ
Skipuleggjandi: UMFN
Start: 31. August 2024 kl: 00:00
Skráning hefst: 28. August 2024 kl: 23:59
Skráningu lýkur: 28. August 2024 kl: 23:59
Sund: 400m
Hjól: 10km
Hlaup: 2,5km
16-17 - 5000 kr.
18-19 junior - 5000 kr.
20-23 (U23) - 5000 kr.
24-39 - 5000 kr.
40-49 - 5000 kr.
50-59 - 5000 kr.
60-69 - 5000 kr.
Keppendalisti er birtur með fyrirvara en keppnisstjórn birtir staðfestan endanlegan lista að skráningarfresti loknum.